07/21/2006

Opnun í kvöld kl 20:00!

medium_boðskort.jpg

07/18/2006

Þórunn bablar...

Jæja nú er allt að gerast... sýningin okkar opnar næsta föstudag kl 20:00 í Gallerí Gyllinhæð, allir velkomnir! Hún verður annars líka opin um helgina kl 10:00-18:00.

Ég ætla ekki að segja mikið um sýninguna, ég er í svo mikilli tímaþröng, en ég skal láta ykkur fá nokkur stikkorð í staðinn: íslenskar plöntur, pikknikk, kleinur, keðjur, hrafnar, laufabrauð, fiskibein, lím, vatnsskurður, skreið, vírar, garn, lakk, ál, ljós..... já er þetta ekki bara nokkuð skýrt?

Við sjáumst hress um helgina, við verðum svefnlausar, taugaveiklaðar og með glæsilega bauga.... en þarna verða alveg óóóógisssla flottir hlutir til mótvægis við okkar ljótleika! ;)

Ég set inn myndir af skyssum fljótlega, netið er bara of hægt núna.

07/13/2006

UPPSKERUHÁTÍÐ

ALLIR VELKOMNIR Á UPPSKERUHÁTÍÐ SKAPANDI SUMARHÓPA HINS HÚSSINS Í RÁÐHÚSI REYKJAVÍKUR Í KVÖLD KLUKKAN 2000.

FJÖLBREYTT DAGSKRÁ Í BOÐI. TÓNLIST-LEIKLIST-MYNDLIST-MEÐ MEIRU OG SVO VIÐ.

ÞAR VERÐUM VIÐ MEÐ SLÆDSJÓV OG KYNNINGU Á ÞVÍ SEM VIÐ HÖFUM STAÐIÐ FYRIR OG ERUM UM ÞAÐ BIL AÐ FARA AÐ STANDA FYRIR.

sjáumst í kvöld

07/10/2006

Já frægðin....

medium_frettabladsforsida.jpg


Frú Hnallþóra I og frú Hnallþóra II vöktu mikla athygli í miðbænum síðasta föstudag. Þær báru fram rjómahlaðnar tertur og fleira góðgæti í yfirnáttúrulegum stærðum á 3 stöðum í borginni og notuðust við hjólbörur til að koma herlegheitunum á milli staða. Paparazzi ljósmyndarar eltu þær á röndum og þær stilltu sér hæversklega upp fyrir þá.
Það er ekki á hverjum degi sem Reykjavíkurbúar og ferðamenn fá að líta þvílíkar þokkadísir og bakkelsi!

Frú Hnallþóra I prýddi forsíðu Fréttablaðsins síðasta laugardag, en einnig má sjá myndir af skvísunum á tveimur stöðum í Blaðinu þann sama dag.

07/07/2006

föstudagsflipp í dag

Í dag verður föstudagsflipp frá 13-15

Þá gætuð þið rekist á þessar tvær gömlu konur á vappi í miðbænum: á laugarvegi, austurstræti, austurvelli...


medium_CIMG2071.2.JPG
medium_CIMG2073.JPG


(Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri!)

07/05/2006

Sýningin 21.-23. júlí

Sýningin okkar verður helgina 21.- 23. júlí í Gallerí Gyllinhæð á Laugarvegi 23.

Opnunin verður á föstudagskvöldinu 21.júlí. Nánar auglýst síðar.

Þeir sem vilja fá boð á sýninguna þegar nær dregur mega endilega skilja eftir tölvupóstfang og/eða símanúmer hérna í kommentakerfinu, eða senda tölvupóst á okkur. (thorunna@lhi.is eða ingunn@lhi.is).

Það eru allir velkomnir!

07/04/2006

Algjör kleina!

medium_DSC01786.JPG
medium_DSC01789.JPG

medium_DSC01791.JPG
medium_DSC01792.JPG

medium_DSC01794.JPG

medium_DSC01801.JPG

medium_minikleina.JPG

medium_minikleinur.JPG


Leitin að hinni fullkomnu pínu-kleinu.

06/29/2006

Síðasta föstudagsflipp 23.júní 2006

Nú er smá getraun fyrir ykkur lesendur síðunnar.

Hvaða íslensku menningarfyrirbæri sjáið þið á stígvélar-fánanum? (Atriðin eru fimmtán)


medium_306.jpg


Nú er um að gera að taka þátt í getrauninni því það er til mikils að vinna!


Myndin er af vefsíðu lötu stelpunnar: www.latastelpan.is

Lundaveiðimann úr Eyjum

medium_lundaveidimann.jpg


Það er undarlegt hvað margir íslenskir minjagripir eru byggðir á lundanum..Hver ber eiginlega ábyrgð á þessu?

06/27/2006

heimsókn á árbæjarsafn og hugmyndarvinna

Jæja kæru lesendur.

Við stöllurnar erum núna á fullu í hugmyndarvinnu.

Fórum á árbæjarsafnið í gær. Mælum með þeirri upplifun.
Við sáum þennan fallega kálf

medium_CIMG1936.JPG


Dásamlega takkí gamalt kort
medium_CIMG1908.JPG


Þessi er nú sæt
medium_CIMG1927.JPG


Burstabær
medium_CIMG1960.JPG

1 2 Next